fjárlög 2022.
Frú forseti. Sem sérstakur áhugamaður hef ég skoðað öll þessi skjöl og teikningarnar og töflurnar vegna þess að þau eru mjög upplýsandi um áformin. Þau eru líka upplýsandi um forsendurnar sem menn gefa sér, til að mynda þær forsendur að ef ekki verði ráðist í þessa framkvæmd þá muni umferðarþungi bara aukast og þar af leiðandi þurfi að leggja borgarlínu. Með öðrum orðum, menn virðast nálgast þetta svona: Ja, við þurfum að gera eitthvað, borgarlína er eitthvað, gerum það. En þegar nánar er skoðað hvernig menn reikna út þessi hagrænu áhrif þá kemur bara á daginn að þar er afskaplega lítið að baki. Það er einfaldlega litið fram hjá því að verið sé að þrengja að annarri umferð þrátt fyrir að það sé ein af forsendunum, eins og ég rakti hérna áðan. (Forseti hringir.) Það er litið fram hjá því að það að þrengja að annarri umferð með það að markmiði að hægja á henni muni hafa einhver veruleg áhrif.