152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[15:37]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður, ég held að það séu fleiri atriði sem Pírata og Miðflokkinn greinir á um en bara borgarlína, og eitt af því eru loftslagsmálin. Í tali þínu hér á undan fannst mér ég heyra mikið af aðferðafræði síðustu aldar: Iðnaður, iðnaður, iðnaður. Á meðan flest önnur lönd eru farin að horfa til nýsköpunar í stað mengandi iðnaðar þá virðist vera að það sé stefna Miðflokksins að styðja Sjálfstæðisflokkinn í þeim áformum að virkja og virkja. En mig langar að spyrja þig, ég veit við erum ekki sammála um þetta: Hvernig sérð þú nýsköpun sem eina af leiðunum til að takast á við loftslagsvána?

(Forseti (ÁLÞ): Forseti biður hv. þingmenn að gæta að ávarpsorðum.)