fjárlög 2022.
Frú forseti. Þetta er í fyrsta skipti sem ég á orðastað við hv. þingmann hér á þingi og vil ég nota tækifærið til að óska honum til hamingju með kjörið. Það er rétt sem hv. þingmaður segir, við erum eflaust ekki sammála um allt, Miðflokkurinn og Píratar, en þó hef ég stundum orðið var við að við værum sammála um stöku hluti. En af því að hv. þingmaður spyr sérstaklega um mikilvægi nýsköpunar varðandi loftslagsmálin þá er ég algjörlega sammála honum í því. Loftslagsmálin verða ekki leyst nema með nýsköpun, nema með nýrri tækni, með tækniframförum. En það þýðir hins vegar ekki að framleiðsla og iðnaður heyri til liðinni tíð, að það að búa til umhverfisvænan málm eins og ál sé bara eitthvað sem tilheyri 20. ef ekki 19. öldinni. Það mun áfram þurfa ál í hvers konar framleiðslu, ekki hvað síst í nýsköpun. Og nýsköpun hefur iðulega sprottið upp úr framleiðslugreinum eins og áliðnaði. Mörg fyrirtæki á Íslandi hafa náð stórkostlegum árangri í nýsköpun einmitt vegna álframleiðslunnar.