fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Mig langar að tala aðeins áfram um nýsköpun, en mig langar að tala um hana á sviði landbúnaðar, sem þú nefndir hér áðan. Ég veit að þú ert mikill áhugamaður um íslenskan landbúnað og hefur m.a. kennt okkur Íslendingum nýja aðferð við að spara kolefnissporin með því að elda ekki matinn. En það er svolítið þannig með landbúnaðinn, og sérstaklega þegar kemur að loftslagsmálum, að við erum mikið í því að segja við bændurna hvað þeir eigi að gera, fylla upp í skurði, gera þetta, gera hitt o.s.frv. Ég heyrði ágætan mann ræða það um daginn að þetta væri svolítið eins og það að við kæmum með Betty Crocker-kökubox og framan á því væri bara það sem þyrfti að setja í það, ekki þessi fallega kaka sem við viljum fá. Spurning mín til þín er því þessi: (Forseti hringir.) Hvernig getum við unnið saman með bændum við að skapa sýn á það hvernig þeir geta tekist á við loftslagsvána?