152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[15:44]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka fyrir fimmtíu prósentin, ég var ljómandi sáttur við þau. (ÞKG: Takk fyrir.) Við getum nú náð saman um eitt og annað, þessir flokkar, og m.a. heyrist mér að við getum náð saman um sameiginlegar áhyggjur af hagstjórninni og hvernig ríkisstjórnin virðist í fjárlagafrumvarpinu líta fram hjá þeim raunveruleika sem blasir við. Engu að síður nefndi hæstv. fjármálaráðherra í framsöguræðu sinni að það væri mikilvægt að fjárlagavinnan fari að taka mið af raunveruleikanum á hverjum tíma. Ég segi nú bara: Ekki seinna vænna. Það hefði mátt gera það í þessu fjárlagafrumvarpi en það var ekki gert. Það er einfaldlega ekki litið til þess raunveruleika sem blasir við heldur gert ráð fyrir áframhaldandi vexti, áframhaldandi þenslu, það mátti jafnvel heyra það á hæstv. ráðherra, en á sama tíma er ríkissjóður rekinn með mjög verulegum halla, hátt í 200 milljarða.