fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Í stjórnarsáttmálanum eru einmitt öll heimsins atriði klukkuð til þess að gera alla góða. En ef efndir eiga að fylgja orðum þá er ég einfaldlega hrædd um stöðu ríkissjóðs. Pólitíkin sem hv. þingmaður er réttilega að kalla eftir, og við söknum bæði, er að ríkisstjórnin þori að forgangsraða, bæði á tekjuhliðinni en ekki síður á útgjaldahliðinni. Það er það sem ég er að kalla eftir. En talandi um útgjaldahliðina þá eru auðvitað verkefni sem við þurfum að fara í. Ég er algerlega ósammála öllu því sem hv. þingmaður segir um borgarlínu, ég ætla ekki að eyða tíma í það, en það veldur mér ákveðnum áhyggjum að sjá að við erum langt undir langtímameðaltali þegar kemur að fjárfestingu í innviðum. Hæstv. fjármálaráðherra sagði í gær að einhver slaki yrði á fjárfestingum innan lands og ég hef áhyggjur af því að við skulum ekki halda fjárfestingum áfram af krafti því að það skilar sér í auknum hagvexti en líka í betri þjónustu og betri innviðauppbyggingu fyrir fólkið okkar. (Forseti hringir.) Ég hef því áhyggjur af lítilli fjárfestingaframsýni hjá ríkisstjórninni og vil spyrja hv. þingmann: Hefur hann kynnt sér þann hluta fjárlagafrumvarpsins?