152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[17:01]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil taka undir orð hv. þingmanns um námslánakerfið og stúdenta. Það er ekkert í þessu fjárlagafrumvarpi sem bendir til þess að til standi að hækka grunnframfærslu námsmanna, hækka fæðingarstyrk námsmanna, hækka frítekjumark námsmanna eða tryggja aðgang þeirra að atvinnuleysistryggingakerfinu eins og stúdentaráð hefur margsinnis kallað eftir og stúdentahreyfingin öll. Þetta eru bara ósköp kaldar kveðjur til ungs fólks og fólks í námi. Ég sá það líka að orðin námsmenn eða kjör námsmanna komu hvergi fyrir í stjórnarsáttmála nýju ríkisstjórnarinnar. Þetta er fólk sem hefur svo sannarlega tekið á sig lífskjaraskerðingu í heimsfaraldrinum og ég velti því bara fyrir mér og fæ að beina því til hv. þingmanns: Getum við gert okkur einhverjar vonir um að úr þessu verði bætt núna milli umræðna? Væri það ekki lágmarkskrafa að fjárlaganefnd, og við öll hér á Alþingi, fái mjög greinargóðar skýringar á því á næstu dögum hvað raunverulega stendur til og hvað núverandi ríkisstjórn hefur í hyggju hvað varðar réttindi og kjör námsmanna?