fjárlög 2022.
Frú forseti. Já, það er áberandi, eins og hv. þingmaður nefnir, að námsfólk er ekki nefnt í samstarfsyfirlýsingunni og ef ég man rétt eru háskólar og rannsóknir eiginlega ekki sjálfstætt viðfangsefni í þessum sáttmála heldur bara nefnt í tengslum við atvinnuvegina sem ríkisstjórninni finnst þau eiga að þjóna. Ég hef miklar áhyggjur af menntastefnu þessarar stjórnar út frá lestri samstarfsyfirlýsingarinnar og fjárlagafrumvarpsins. Þær áhyggjur minnkuðu ekkert mikið þegar fréttist að hæstv. ráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, væri að fá Ásdísi Höllu Bragadóttur inn í ráðuneytið til að skipuleggja mál þar innan húss. Þá grunar mig að það verði dálítill nýfrjálshyggjutónn sleginn varðandi vísindi og æðstu menntun í landinu. Er einhver von? Nei, ég held ekki, ekki frekar en hjá síðustu ríkisstjórn sem móaðist í fjögur ár við að bæta kjör námsmanna.