152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[17:04]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að það sé við hæfi að halda áfram að tala aðeins um málefni ungs fólks og framtíðarinnar. Í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar er fjallað mikið um lýðheilsu og forvarnir, það eru orð sem koma oft fyrir og ekki að ástæðulausu. Það er fátt mikilvægara, þegar heimsfaraldur geisar með tilheyrandi sóttvarnaaðgerðum og samskiptatakmörkunum, einangrun og einmanaleika. Þess vegna eru það talsverð vonbrigði að sjá hve fjármunir eru naumt skammtaðir til lýðheilsumála og forvarna í þessu frumvarpi. Það er beinlínis gert ráð fyrir að framlög til lýðheilsu, forvarna og eftirlits dragist saman milli ára og haldi svo áfram að lækka árið þar á eftir. Mig langar að beina þeirri spurningu til hv. þingmanns hvort hann deili áhyggjum mínum af þessum áformum ríkisstjórnarinnar.