152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[17:05]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að í þessu endurspeglist kannski almennt vandamál við það hvernig fjárlögin eru sett upp. Það hefur verið sett stefna, kannski til fimm ára, um einhverja þætti lýðheilsumála. Hún er síðan afrituð og límd inn í fjárlög og fjármálaáætlun. Þegar við vorum að gagnrýna það að framlög til loftslagsmála færu húrrandi niður eftir næsta ár var okkur alltaf bent á að það væri allt í lagi, það kæmi örugglega ný stefna einhvern tímann seinna og þá myndi þetta hækka. Vandinn er nefnilega að þessi fjárlög, eins og stefnuyfirlýsingin, eru kannski meira eins og ársskýrsla, ég vil ekki segja uppsóp. Það er búið að safna saman öllum stefnuplöggum sem stjórnin gerði á síðasta kjörtímabili og púsla þeim einhvern veginn saman. Það er ekkert nýtt í þessu. Ef það væri eitthvað nýtt værum við ekki að (Forseti hringir.) sjá liði eins og loftslagsmál eða lýðheilsu lækka í langtímasýninni heldur einmitt þvert á móti hækka.