152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[17:07]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir ræðuna. Mig langar að spyrja hann um hræsnina í loftslagsmálum, þessa ótrúlegu hræsni þegar við erum að tala um að 13 milljarðar fari í málaflokkinn en erum á sama tíma að selja loftslagskvóta fyrir milljarða til umhverfissóða sem nýta kjarnorku, kol og olíu. Það sýnir okkur að þegar svona gróðalind er einu sinni komin af stað verður erfitt að stoppa það. Við höfum annað dæmi um furðulega gróðalind þegar verið er að níðast á einu dýri til að búa til hormón til að geta níðst á öðru dýri og það er allt í lagi af því að það skilar svo miklum gróða. Sér hv. þingmaður fyrir sér að hægt sé að stöðva svona gróðahyggju, t.d. í loftslagsmálum? Og ef við næðum stjórn á öllum okkar loftslagsmálum og værum til fyrirmyndar hversu miklu í prósentum, 0,000X%, myndi það skila á heimsmælikvarða?