152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[17:10]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og ég get ekki annað en verið innilega sammála honum. Menn komu þarna á einkaþotum til Glasgow, flugu burt í einkaþotum og töluðu en engar efndir. Það er annað sem sló mig líka þegar hv. þingmaður var að tala um tengiltvinnbíla en ég hafði á tilfinningunni að hann væri ekki ánægður með að þeir fengju niðurgreiðslu af því að þeir væru með brunahreyfil, dísil. En horfum á það, þeir eru með hleðslu upp á rafmagn í 50 km. Það dugar yfirleitt í flestar ferðir hér innan bæjar og innan sveitar og borga á landinu. Þetta er í 90% tilfella eingöngu notað þegar fara þarf lengri ferðir. Á sama tíma er fólk kannski á gömlum bílum sem menga gífurlega mikið, sem drepa ekki á sér. Svo eru aðrir á bílum sem drepa á sér í hvert einasta skipti í hægaganginum hérna þegar þú kemst 1 km á klukkustund og ert kannski klukkutíma að fara 10 km. Er þá ekki betra að vera á tvinnbíl, rafmagnsbíl, sem fer aldrei yfir á brunahreyfil?