152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[17:13]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir ræðuna sem hann flutti áðan, fín yfirferð yfir loftslagsmálin og hann kom aðeins inn á það sem margir aðrir hafa talað um hér í ræðustól og er auðvitað mjög mikilvægt viðfangsefni þegar við erum að ræða um fjárlög, þ.e. hvernig þetta allt saman ber að. Við erum með haustkosningar, við erum með langan tíma þar sem er verið að finna út úr þessu með Norðvesturkjördæmi, það er verið að mynda ríkisstjórn og svo komum við hér og erum að vinna í fjárlögum svolítið á hundavaði. En ég sakna þess aðeins að við ræðum líka pínulítið að það situr ekkert þing í marga mánuði áður en kosið er. Við förum í kosningabaráttu að hausti til, upp úr sumri, og við vitum nú hvernig íslensku sumrin eru og móttakarinn hjá fólki í hinni pólitísku umræðu þegar mest á ríður er kannski svolítið dofinn. Ég held að við höfum öll fundið svolítið fyrir því í kosningabaráttunni að það er öðruvísi að ræða þetta upp úr sumarmánuðum heldur en í lok vetrar. Ég ætlaði að fá að heyra hjá hv. þingmanni hvort hann deili þeirri skoðun minni að þetta séu líka rök gegn því að það sé verið að kjósa að hausti.