fjárlög 2022.
Frú forseti. Fyrst varðandi doðann sem hv. þingmaður nefnir að hafi kannski verið hjá kjósendum í kringum haustkosningar, ég á erfiðara með að segja til um það. Ég held að Covid spili líka inn í og aðstæður í kringum það og svo kannski vorum við bara ekki nógu spennandi, ég veit það ekki. En stóra vandamálið er einmitt þetta, að eftirlitshlutverk þingsins hafi verið tekið úr sambandi í næstum hálft ár. Í hálft ár sat eftirlitslaus ríkisstjórn á neyðartímum. Það er stórhættulegt og stóralvarlegt að ríkisstjórnin hafi tekið sér þann tíma, bæði með því að boða til haustkosninga og síðan með því að leyfa þinginu að hanga í tvo mánuði eftir kosningar frekar en að leysa hraðar úr vandanum eða boða bara þing með þeim þingmönnum sem voru með óskorað rétt kjörbréf frá upphafi.