152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[17:16]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Þetta er einmitt mjög mikilvægur punktur, eftirlitshlutverkið sem þingið á að hafa. Það að stjórnarandstaðan hafi ekki formlegan vettvang í nokkra mánuði á kosningaári er auðvitað algerlega ótækt. Ég held að við hljótum flest að sjá það. Síðan er annað, og ég hygg að það séu strax komnar tillögur í þinginu um að bregðast aðeins við því, og það er þessi aðstöðumunur sem við höfum séð. Á meðan þingið getur ekki sinnt aðhaldshlutverki sínu af því að það er í sumarfríi og kemur ekki saman fyrr en mörgum vikum eftir kosningar að hausti þá er þessi aðstöðumunur, þegar ríkisstjórnin og ráðherrarnir geta verið að dæla út fjármunum og spegla sig í sviðsljósinu út frá þeirri aðstöðu sem þeir hafa og ég hygg að tillaga sé komin fram í þinginu um að reyna að bregðast við þeim aðstöðumun og spyr hvort það sé ekki eitthvað sem þingmaðurinn vill deila skoðun sinni á með þingheimi.