152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[17:20]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég verð eiginlega bara reiður þegar ég fer að hugsa um þetta. Stúdentaráð Háskóla Íslands sendi inn umsagnir níu sinnum, að mig minnir, síðasta eina og hálfa árið vegna fjáraukalaga og alls konar viðbragða við Covid sem fóru hér í gegnum þingið. Níu sinnum sagði stúdentaráð akkúrat þetta. Það er ekki verið að biðja um neina ölmusu. Það er bara verið að biðja um að námsfólk sem vinnur með skóla, og af þeim launum er greitt tryggingagjald, njóti þess sem tryggingagjaldið veitir öllu öðru fólki, það er bara einfalt. Þetta eru réttindi sem fólk vinnur sér inn, þetta er gjald sem er greitt, en námsfólk fær ekki að snerta þennan pening. Samt erum við með kerfi þar sem grunnframfærslan er 196.000 kr. á mánuði, munum það. Þetta er kerfi sem er sniðið til að fólk verði að vinna með skóla. Það verður að gera það. 70% íslenskra námsmanna vinna með skóla, hæsta hlutfall í Evrópu. Við erum búin að neyða þetta fólk út á vinnumarkaðinn. Svo þegar vinnan hverfur þá fá þau ekki atvinnuleysisbætur.