152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[17:21]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mig langar líka að fara inn á loftslagssviðið. Í ræðu í dag var talað um að við ættum bara að halda áfram að framleiða mikið af því að við værum svo græn. Ég vil bara minna á þynningarsvæði sem verða til í kringum álverin. En mig langar líka að nefna kísilverin sem eru að framleiða kísilmálm sem á að vera svo umhverfisvænn, nýttur í símana okkar og tölvurnar. Þannig er að í Helguvík stendur óstarfhæf kísilverksmiðja og eigandinn er áfram um að koma henni í gang aftur. En í dag greinir Kjarninn frá því að á þeim tíma sem verksmiðjan starfaði, frá 2016–2017, voru 10.500 tonn af kolum og tæplega 3.000 tonn af viðarkolum notuð á tíu mánuðum. Það voru 97 tonn af dísilolíu (Forseti hringir.) og bensíni notuð og losun koltvísýrings frá jarðefnaeldsneyti var 31.410 tonn og frá lífmassa 33.847 tonn, (Forseti hringir.) samtals um 65.257 tonn. Losuð voru 115 tonn af brennisteinsdíoxíði út í andrúmsloftið en vegna tæknilegra örðugleika var ekki hægt að mæla svifryk. Er þetta réttlætanlegt?