152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[17:23]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Einfalda svarið er nei. Það er ekkert mjög langt síðan að íslensk stjórnvöld auglýstu Ísland sem áfangastað fyrir fyrirtæki sem vildu kaupa raforku á útsöluverði og þyrftu ekki að hafa of miklar áhyggjur af regluverki til að vernda umhverfið eða íbúa í nágrenni stóriðjunnar. Sá tími er löngu liðinn. Svona iðjuver eru bara arfur fortíðar sem við erum sem betur fer í flestum flokkum búin að átta okkur á. Þessi mantra um að alltaf þurfi að framleiða meira og meira er síðan eitthvað sem við þurfum að fara að venja okkur af. Þó að framleiðslan sé grænni þurfum við líka að fara að framleiða minna. Heimurinn þarf að ná fram sömu velsæld og hamingju með minna dóti. Tökum dæmi af rafmagnsbílum. (Forseti hringir.) Ef við myndum ætla að skipta öllum bensínbílum út fyrir rafmagnsbíla þá myndum við lenda í auðlindaþurrð á svo mörgum stöðum að það myndi valda (Forseti hringir.) umhverfishörmungum. Þess vegna þurfum við alvörukerfisbreytingar. Við megum ekki taka gamla módelið og bara skipta um mótor í því. Við þurfum alvörukerfisbreytingar og þær er ekki að sjá hjá þessari ríkisstjórn.