152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[17:35]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir ræðuna og vil tala við hann um samgöngumálin. Ég held að það geti ekki verið eitt einasta barn þingmanns, allra síst í núverandi ríkisstjórn eða síðustu ríkisstjórn, eða ráðherra sem þarf að fara um þennan stórfurðulega veg sem er svo holóttur að það er eiginlega hola ofan í holu. Ég spyr mig: Hvernig getum við leyft börnunum að fara í skóla eftir svona vegi? Ég sé fyrir mér að þau fái garnaflækju og jafnvel verði fyrir, ég veit ekki hverju, við það að hristast í skólann, kvölds og morgna. Ég spyr: Hvernig í ósköpunum eigum við að trúa því að ríkisstjórnin sé að fara í bætur á vegum og bora heilu fjöllin ef þau geta ekki einu sinni séð um svona veg? Þetta er svo langt gengið að sveitarstjórnin er farin að safna til að reyna að knýja á um að eitthvað sé gert í þessu stórfurðulega máli, því að þetta hefur ekki gerst einu sinni heldur höfum við horft upp á þetta ár eftir ár. Ég hugsa hversu mikið tjón hafi orðið á bílum, hverjar afleiðingar séu af því að hristast þarna fimm daga vikunnar, tíu sinnum, kvölds og morgna. Ég spyr mig: Hefur hv. þingmaður einhverja trú á því að þessi samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar gangi upp í sjálfu sér? Þau eru ekki byrjuð að skera niður og geta ekki einu sinni sett fé í þennan veg.