fjárlög 2022.
Frú forseti. Ég þakka andsvarið. Ég náði ekki að koma inn á spurningu hv. þingmanns í fyrra andsvari sem ég ætla að koma inn á núna, sem snýr að tiltrú minni á samgönguáætluninni eins og hún liggur fyrir. Það er tvennt sem dregur mjög verulega úr tiltrú minni á annars vegar 15 ára áætluninni, þ.e. þetta atriði sem snýr að samvinnuverkefnunum sem virðist einhvern veginn vera miklu óljósara en ráð var fyrir gert. Hitt er að þriðja áætlunartímabil samgönguáætlunar, langtímaáætlunarinnar, er held ég að miklu leyti úti í vindinum. Þetta er einhver minnislisti. Það er mjög fjarri því að hægt sé að hafa raunhæfar væntingar um að það sé fjármagnað miðað við hvernig fjármögnunartakturinn er í núverandi áætlunum, miðað við það að til nýframkvæmda á árinu 2024 samkvæmt samgönguáætlun eru einungis áætlaðir 10,5 milljarðar. Menn komast því miður ekki langt á því.