152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[17:48]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég gróf upp frumvarpið um samvinnuverkefni í samgönguframkvæmdum og þar stendur, með leyfi forseta:

„Miðað við núverandi stöðu í ríkisfjármálum er því nauðsynlegt, ef ráðast á í auknar samgönguframkvæmdir, að fela þær aðilum utan hins opinbera …“

Bara vegna þess að það skiptir máli í samhengi ríkisfjármála hvar upphæðin er bókfærð. Það er sama ríki sem greiðir þetta að fullu eða sami almenningur sem greiðir þetta að fullu og yfirleitt dýrara verði ef það er í gegnum PPP-framkvæmd. Það er bókhaldstrikk að búa til eitthvert kerfi utan um það og það er það sem á að fara að keyra á fullum krafti samkvæmt samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna. Ég er sammála þingmanninum um að þetta þurfi að skoða. Ef lög um opinber fjármál kalla á svona svindl, til að kasta ryki í augun á fólki, þá þarf að breyta kerfinu.