fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur fyrir góða ræðu þar sem hún fór yfir mörg málefni. Eitt málefni af mörgum sem hún talaði um greip ég á lofti og það var í sambandi við krabbamein. Ég heyrði í Birni Zoëga, sem er forstjóri Karólínska sjúkrahússins í Svíþjóð, í Kastljósi þar sem hann viðraði þær áhyggjur að krabbamein yrði mikið vandamál eftir Covid, sem það var þegar orðið vegna þess að fólk hefði ekki skilað sér inn í tvö ár. Þetta hefur líka valdið mér heilabrotum þegar við sjáum og lesum um að verið er stöðva samdægurs aðgerð á sjúklingi sem er tilbúinn í hjartaaðgerð. Aðgerðin er sett á bið og ekki í einn dag, ekki í tvo daga heldur jafnvel viku eða hálfan mánuð. Og þetta er allt gert á þeim forsendum að það þurfi að taka á þessu vegna Covid.
Ég verð að spyrja og segja það einu sinni enn í þessum ræðustól: Má deyja úr öllu á Íslandi nema Covid-19? Er það það eina sem allt á að snúast um? Ef svo er hef ég gífurlegar áhyggjur af því. Við hljótum að fara að spyrja okkur hvort við verðum ekki að fara að taka á öllum hinum veikindum sem eru til staðar. Ég spyr hv. þingmann hvort hún sé ekki sammála mér í því að það þurfi strax að bretta upp ermarnar og taka á biðlistum, taka á öðrum sjúkdómum og sjá til þess að ekki sé bara einblínt á Covid-19.