152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[18:31]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég ætla að byrja hérna aðeins á almannatryggingunum. Þar er pínu flókið og pínu nýtt, annars vegar það sem ég talaði um í fyrri ræðunni sem ég ætla að rifja aðeins upp, en svo vil ég bæta því við líka sem er í frumvarpinu um raunhækkun almannatrygginga miðað við 69. gr. Það er nýmæli í frumvarpinu sem mér finnst mjög áhugavert og væri til í að fá aðeins nánari skýringar á hjá hæstv. ráðherra málaflokksins. Þar segir, með leyfi forseta:

„Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að prósentuhækkun bóta almannatrygginga, þ.e. elli- og örorkulífeyris, og bóta samkvæmt lögum um félagslega aðstoð verði 4,6% frá og með 1. janúar 2022. Áætluð útgjöld vegna þess eru um 10,2 ma. kr. á árinu 2022.“

Síðan verður aukalega 800 milljónum varið í sérstaka 1% viðbótarhækkun á bætur örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega umfram forsendur verðlagshækkunar bóta almannatrygginga á árinu 2022. Ókei, flott. Síðan verður þetta pínu ruglingslegt og þar kemur nýi hlutinn inn:

„Almennar prósentuhækkanir almannatrygginga í fjárlögum ársins 2021 námu 3,6% í samræmi við almennar prósentuhækkanir launa. Vænt verðbólga ársins 2021 er samkvæmt þjóðhagsspá Hagstofu Íslands um 4,4%. Því er verðlagshækkun almannatrygginga hækkuð um 0,8% til að hækkun ársins 2021 verði ekki minni en hækkun verðlags samkvæmt vísitölu neysluverðs. Áætlaður kostnaður vegna þeirrar viðbótarhækkunar er um 1,8 ma. kr.“

Þetta mun líka gilda fyrir atvinnuleysisbætur. Þetta er áhugaverð viðbót. Ég hef oft kvartað undan því að gert er ráð fyrir spá um hvernig verðlagsþróun eða launaþróun verður fyrir næsta ár í fjárlögunum en það hefur ítrekað verið vanmetið. Hérna virðist loksins vera leiðrétting miðað við verðlagsþróun, sem er bara mjög jákvætt.

Ég er aðeins að reyna að átta mig á því hvernig þetta púslast saman, þessi núverandi 4,6% hækkun, 1% viðbótarhækkunin og hvernig síðan 4,4% hækkunin, eða sem sagt 0,8% hækkun út af 2021, er sett inn í það. Er það eingreiðsla fyrir það sem vantaði upp á fyrir 2021 sem heldur síðan áfram fyrir 2022? Eru þessi 0,8% inni í hlutanum, þessi 1% sem er verið að bæta við? Hvar leggst það saman við heildina fyrir árið 2022? Það er spurning sem mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra.

Einnig hyggst ríkisstjórnin framlengja 2,5% Covid-uppbótina til atvinnulausra. Covid er jú enn þá til staðar og uppbótin rennur út um áramótin.

Hitt sem ég fjallaði um í fyrri ræðu minni er ákveðinn galli í lögum um almannatryggingar sem mér var bent á seint í sumar, fyrir tiltölulega stuttu, fyrir kosningabaráttuna, að það er ekki hægt að taka greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum frá sem tekjur. Það þýðir sem sagt að fólk sem er með ellilífeyri frá Tryggingastofnun á að geta talið greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum sem atvinnutekjur og frítekjumarkið vegna þeirra atvinnutekna að telja með fyrir þær greiðslur. Ég fór hérna yfir það hvernig þetta virðist hafa dottið úr lögunum þegar þeim var breytt árið 2016, þegar þessu var skipt í annars vegar örorkulífeyri, þar sem það er sérstaklega tiltekið að greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum teljist ekki til tekna, en í 4. mgr. 16. gr. vantar einmitt þá setningu sem er dálítið áhugavert. Mig langaði til að spyrja hæstv. ráðherra aðeins um þennan skilning og þessi vandkvæði og mögulega hvaða áhrif það hefur á samþykkt fjárlaga fyrir næsta ár, ef við vitum að við þurfum væntanlega að gera ráð fyrir því og uppfæra fjárlög með tilliti til þess.

Aðeins að öðru: Ég ætla að eyða afganginum af ræðu minni í almenna umfjöllun um fjárveitingavaldið og þá stöðu sem þingið er í út af því hversu seint fjárlagafrumvarpið er fram komið. Það er algjörlega kýrskýrt að það er Alþingi sem fer með fjárveitingavaldið. Það þýðir að það er nauðsynlegt að við vitum hvaða fjárheimildir er verið að samþykkja þegar við förum í það að ýta á græna, gula eða rauða takkann seinna í desember. Ég velti fyrir mér hvort Alþingi geti mögulega fjallað um fjárlög með sómasamlegum hætti á svona stuttum tíma. Nú höfum við gengið í gegnum það tvisvar sinnum áður, 2016 og 2017, að afgreiða fjárlög með skömmum fyrirvara með alls konar loforðum um að það yrði reglubundið eftirlit og þingið yrði upplýst um ýmsar fjárheimildir sem væri kannski dálítil óvissa um vegna þess hvernig fjárlögin voru framkvæmd. Það var náttúrlega aldrei gert. Þetta er hin svokallaða eftirfylgni með framkvæmd fjárlaga sem átti að vera einstaklega virk á þessum tíma í því að fylgjast enn meira með framkvæmdarvaldinu sem fékk í rauninni auðan tékka sem þau gátu bara fyllt út eins og þau vildu og eytt í hin og þessi verkefni, án þess að Alþingi hefði í rauninni hugmynd um hvort það hefði samþykkt það eða ekki. Það er vandinn í hnotskurn: Við vitum í raun og veru ekki hvað við erum að samþykkja og upplýsingarnar sem við fáum um það sem er verið að gera við fjárheimildirnar koma bara frá framkvæmdarvaldinu sjálfu, sem kemur með þetta fjárlagafrumvarp sem við eigum að kynna okkur mjög vel og samþykkja, staðfesta eða hafna eða breyta. En ef við getum það ekki þá getur framkvæmdarvaldið nokkurn veginn sett það sem það vill þarna inn, falið það í málaflokkum og safnliðum og öðru slíku, og gert nokkurn veginn hvað sem er. Það er ekki tilgangurinn með lögum um opinber fjármál að vinna fjárlög á þennan hátt. Þetta er eins fjarri því og hægt er að hafa það.

Þetta er alvarlegur ágalli sem ég tel að við þurfum að bregðast einhvern veginn við. Þegar við vorum að glíma við fjárlagavinnuna hérna 2016 og 2017 kom upp úr dúrnum að það hefði gerst áður að fjárlög voru ekki samþykkt fyrir áramót, það var bara samþykkt að hægt væri að fara í ákveðnar greiðslur, laun og ýmislegt svoleiðis, þessar skyldugreiðslur, en fjárlög voru síðan afgreidd stuttu seinna. Ég velti því í alvörunni fyrir mér hvort þetta sé ekki eitthvað sem við verðum að gera af því að það hvernig farið var með fjárlög fyrir 2017 og 2018, sem voru samþykkt 2016 og 2017, er ekki gott fordæmi.

Við erum í þeirri stöðu hérna á þingi að upplýsingar um þann aðila sem við eigum að hafa eftirlit með, framkvæmdarvaldið, fáum við aðallega frá framkvæmdarvaldinu. Þess vegna eru ýmis ákvæði í lögum um að framkvæmdarvaldið eigi að svara spurningum þingmanna innan ákveðins tíma, skila skýrslum innan ákveðins tíma. Þegar nefnd biður um upplýsingar frá framkvæmdarvaldinu er krafan sú að þær séu veittar innan sjö daga til að Alþingi geti sinnt eftirlitshlutverki sínu. En iðulega lendum við í því að spurningum er svarað með nokkrum skætingi. Það eru reyndar allar útúrsnúningsaðferðir, það er tafið og hvað eftir annað lendum við í því að fá ekki svör við spurningum okkar. Ég vonast til þess að hæstv. ráðherra geti svarað þeim spurningum sem ég beindi til hans í þessari ræðu, þetta eru mikilvægar spurningar að því að mér finnst, og ég sendi þessa hvatningu hérna út fyrir veggi þessa salar og til fjárlaganefndar.