152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[18:42]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir frábæra ræðu. Ég hlustaði á hann þegar hann var að tala um kerfið síðast og núna hlustaði ég aftur og ég verð að segja að það hlýtur að sjóða á einhverjum leikmönnum úti í bæ vegna þess að þeir botna örugglega hvorki upp né niður í hvað verið er að tala um. Og ef ég hefði ekki fylgst nógu vel með hefði ég ekki haft hugmynd um það og samt tel ég mig hafa töluvert vit á þessu kerfi og ég held að hann hljóti að vera sammála mér um að þetta segir okkur hversu agalega vitlaust þetta kerfi er. Ef við tökum t.d. eitt orð sem fæstir fatta hvað er: víxlverkun lífeyrissjóða og Tryggingastofnunar, sem er endurnýjað ár eftir ár og við vitum hvað skeði hérna fyrir tveimur, þremur árum síðan þegar gleymdist að setja inn skerðingar á lífeyrissjóðunum og ríkið tapaði því.

Nú er þetta mannanna verk, þetta stórfurðulega flókna kerfi sem erum búin að bútasauma undanfarin ár og ég varð einhvern veginn sannfærður um að þetta væri svona kerfi fyrir mistök, hefði verið mistök, byrjað sem mistök, mistök sem væru búin að vinda upp á sig og þar af leiðandi hlyti einhverjum að detta í hug að segja: Heyrðu, nei, heyrðu, við hættum þessu, þetta er orðið svo vitlaust að við hljótum að fara að leiðrétta þetta og taka á þessu vandamáli og segja bara: Hingað og ekki lengra, þetta gengur ekki upp lengur. En það er ekki gert. Það er enn verið að bæta inn í kerfið, enn verið að leika sér að því að setja 1.000 kr. hér en taka þær strax með vinstri hendinni út um allt kerfið og þar af leiðandi hlýtur, ég spyr hvort hv. þingmaður sé sammála mér um það, þetta að vera vísvitandi og viljandi gert.