152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[18:44]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Jú, ég held að það megi rekja það dálítið langt aftur í tímann af hverju þetta er svona mikið kraðak, í raun til deilu um það hvort svona tryggingakerfi sé viðbót eða lágmark, þ.e. maður heyrir oft að lífeyrissjóður eigi að vera ofan á, hvort almannatryggingar ríkisins eigi bara að vera fyrir alla óskertar og allt sem fólk aflar sér með skyldubundnum lífeyrissjóði sé ofan á þær tryggingar og hvort kerfið hafi breyst á einhverjum tímapunkti yfir í það einmitt að vera lágmark þannig að ef fólk myndi ekki ná ákveðinni framfærslu í gegnum skyldubundinn lífeyrissjóð þá myndi almannatryggingakerfið dekka mismuninn. Það virðist einfaldlega enginn vera sammála um hvort þetta átti að vera viðbót við skyldubundinn lífeyri, sem fólk aflaði sér sjálft, eða hvort þetta átti að vera lágmarkstrygging. Þetta er lágmarkstrygging eins og er með fullt af skerðingardóti sem gerir það að verkum að við lendum í svona fátæktargildrum fram og til baka og það er einfaldlega ekki hægt að komast úr þeirri gildru ef þú hugsar kerfið út frá því að þetta sé lágmarkstrygging. Það er bara innbyggt í slíkt kerfi að það búi til fátæktargildru þannig að ég held að án þess að hætta því (Forseti hringir.) verði aldrei hægt að gera þetta kerfi einfalt.