fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og get ekki verið annað en innilega sammála honum. Nú var gerð leiðrétting á kerfinu fyrir eldri borgara en öryrkjarnir skildir eftir vegna þess að þeir vildu ekki kyngja starfsgetumati, vildu ekki kyngja ákveðnum breytingum. Síðan er búið að vera að reyna að fá þá til að kyngja því með loforðum um breytingar, sem auðvitað gengu ekki eftir. Ég hef það einhvern veginn á tilfinningunni að það að hafa kerfið svona sé ákveðin hækja hjá ríkisstjórninni til þess að geta bara haldið öllu óbreyttu. Ég sé það best í málflutningi hæstv. fjármálaráðherra þegar hann notar vísitölu neysluverðs sem hækju til að lemja fjárhagslega á öryrkjum þannig að það er aldrei hægt að ná þeim upp fyrir í launaþróun heldur fá þeir eingöngu verðtrygginguna, eins og við sáum þegar hv. þingmaður lék (Forseti hringir.) sér að tölunum áðan. Þeir fá aldrei nema rétt verðtrygginguna og enga launaþróun.