fjárlög 2022.
Frú forseti. Mig langar einfaldlega að nota tækifærið hér og hvetja hv. þingmann og aðra fulltrúa í fjárlaganefnd til að skoða kyngreininguna vel og það er mjög gott að hún sé gerð. Hér hafa verið stigin mikil framfaraspor en það verður að kafa dýpra eftir ástæðunum. Við verðum að kafa dýpra eftir því hvers vegna körlum vegnar betur í vísindasamfélaginu en konum. Er það vegna þess að greinarnar sem konur eru að rannsaka eru álitnar einhvern veginn minna spennandi, minna verðmætar eða ekki skapa eins spennandi þekkingu? Þetta er eitthvað sem skiptir máli af því að þetta hefur allt áhrif á það hver staða karla og kvenna er innan þessa samfélags og það skiptir mjög miklu máli ekki bara hvaða upphæðir fara í þessa styrki heldur nákvæmlega hvernig þeim er útdeilt.