fjárlög 2022.
Forseti. Já, ég og fjölskylda mín erum að upplifa þetta vandamál mikið. Konan mín er sem sagt í vísindum og við skynjum það mjög vel hversu hefðbundið karlastarf vísindastarfið er og sérstaklega af því að ég er hérna á þingi, er líka í hefðbundnu karlastarfi, því bæði þessi störf gera í raun ráð fyrir því að einhver sé heimavinnandi. Allir hvatar á bak við alla vinnu í vísindum eru þannig. Það sama með starfsumhverfið hérna. Það er bara ákvörðun sem við þurfum að taka um að vinna öðruvísi. Það er ein af áherslum mínum í forsætisnefnd að við tökum dálítið til hendinni varðandi vinnutímann hérna, að það séu ekki þingfundir fram á kvöld yfirleitt, bara klárist klukkan fimm í allra síðasta lagi. Það þurfi þá sérstaka heimild til að vera með þingfund til klukkan átta ef það er eitthvert neyðartilfelli og það þurfi t.d. alltaf að greiða atkvæði um allar þingfundalengingar fram yfir klukkan átta. Það á að duga að vera hér til fimm í mesta lagi.