fjárlög 2022.
Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir ræðuna og þær spurningar sem hann beindi til mín. Hv. þingmaður var að velta fyrir sér hækkunum miðað við 69. gr. Þær samanstanda af 3,8% væntri launaþróun á árinu 2022, eins og þingmaðurinn kom inn á, og síðan bætast þessi 0,8% við vegna væntrar verðbólgu í ár, þ.e. 4,6%, sem skýrir þá tölu. Það sem bætist síðan ofan á er þetta 1% og það er í raun aukning sem á að koma til örorkulífeyrisþega og er algerlega aukalega við þær verðlagsbætur sem eru í frumvarpinu. Ég vona að mér hafi tekist að svara spurningunni um það hvernig þessi 0,8% eru sett inn. Ef ekki þá er ég sannfærður um að hv. þingmaður getur rætt þetta betur við fulltrúa fjármálaráðuneytisins í nefndinni þar sem hv. þingmaður á sæti í henni. Ég vona að þetta hafi útskýrt málið en vil bara leggja áherslu á það hér að auki að við erum að boða einföldun á þessu kerfi sem ég held að sé gríðarlega mikilvægt. Það tókst að gera fyrir ellilífeyrisþega fyrir fjórum eða fimm árum. Og áhersla verður lögð á að halda vel utan um þau sem ekki geta unnið og að búa til hvata fyrir frekari virkni fyrir þau sem geta unnið að einhverju leyti.