fjárlög 2022.
Forseti. Nú skil ég ekki neitt því að vænt verðbólga ársins 2021 var 4,4%, er 4,6% fyrir 2022, sem búist er við, og það eru sem sagt 0,8% eftir það. Eða hvað? Hvar er þá þetta 1%? Þetta endaði í 5,6%. Þess vegna skil ég þetta ekki alveg. Í hvaða verðbólguviðmiði byrjum við? Hvar koma 0,8%? Hvar kemur þetta 1%? Það er sagt sums staðar að þetta endi í 5,6%, það virðist vera þetta 1%. Þá veit ég ekki hvar þessi 0,8% koma inn í þetta. Hvar kemur leiðréttingin frá 2021 inn í útreikninginn sem talað er um í fjárlagafrumvarpinu? Er munurinn á milli þess sem átti að vera verðbólga 2021 og þess sem varð raunveruleg verðbólga? Ég átta mig ekki á því hvar þetta er.
Svo var það hin spurningin sem hæstv. ráðherra kom ekkert inn á, um greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum. Það virðist ekki vera heimild fyrir Tryggingastofnun til að taka þær ekki með sem atvinnutengdar tekjur. Það verður að taka tillit til þeirra þegar verið er að skoða atvinnutekjur ellilífeyrisþega. Það kemur til kasta frítekjumarksins á sama tíma en núna er það til hliðar við frítekjumarkið. Það er það sem ég fjallaði ítarlega um í fyrri ræðu minni og rifjaði aðeins upp í seinni ræðunni. Mér finnst dálítið mikilvægt að því sé svarað.