fjárlög 2022.
Hæstv. forseti. Rétt til að klára þetta með prósenturnar. Ég vona að ég geti útskýrt að 4,6% hækkunin er tvíþætt. Hún byggist annars vegar á mati á áætluðum meðaltaxtahækkunum á vinnumarkaði fyrir 2022, sem er 3,8%. Síðan bætast ofan á það 0,8%, sem eru útskýrð betur á bls. 133 í frumvarpinu, og eru vegna þess að almenn prósentuhækkun almannatrygginga nam 3,6% 2021 og vænt verðbólga ársins 2021 er 4,4% og munurinn á því er 0,8 sem leggst þarna á, 1% er hins vegar algerlega viðbót.
Nú sé ég að ég er búinn með tímann og get ekki svarað hv. þingmanni varðandi hitt atriðið. En við munum glöð gera það þegar við mætum á fund nefndarinnar þannig að hv. þingmaður mun fá svarið sitt.