fjárlög 2022.
Virðulegi forseti. Það er erfitt að fara með svona margar tölur og púsla þeim saman í ræðustól þingsins, ég vorkenni hæstv. ráðherra að fara með slíkt. Þegar ég var að reyna að útskýra þessa flækju í gær varðandi atvinnutengdu tekjurnar vegna lífeyrissjóða, þá var bara ekki einfalt að útskýra það í töluðu máli. Það er einfaldlega þannig, það þarf alveg glærusýningu fyrir það. Ég ætla bara örstutt, fyrst ég gleymdi því í ræðunni, að kynna breytingartillögu sem ég lagði líka fram fyrir 1. umr. Um er að ræða breytingu á málefnasviði menningar, lista, íþrótta og æskulýðsmála, það er undir flokknum Menningarsjóðir. Þar virðist hafa gleymst að laga nokkra liði með tilliti til verðlags og launavísitölu þannig að ég skellti því inn svona til þess að minna á það.