152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[19:34]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið sem var býsna gott af því að þetta er alveg hárrétt. Ég byrjaði að hugsa um hvort ekki væri við hæfi að breytingartillögur ríkisstjórnarinnar myndu berast hv. fjárlaganefnd fyrir fund nefndarinnar í fyrramálið ef af verður, en búið er að tilkynna nefndarfólki að það kunni að koma til fundar klukkan níu í fyrramálið. Hitt er bara dónaskapur, að segja fólki að fara af stað í einhverja vinnu og svo kemur eitthvað allt annað frá ríkisstjórninni. Þá verð ég að segja að það er auðvitað líka dónaskapur að gera umsagnaraðilum það sem fá nánast engan tíma til að senda inn umsagnir, fá bara örfáa daga til að bregðast við mörg hundruð blaðsíðna plaggi — og við erum ekki að tala um eitthvert klink, við erum að tala um umtalsverðar fjárhæðir heilt ár í ríkisrekstri — að bregðast við plaggi sem ráðherrar leyfa sér að segja að sé bara plat, sé bara til bráðabirgða og muni taka miklum breytingum. Í rauninni ætti hver einasti umsagnaraðili að krefjast þess að þurfa ekki að skila inn umsögn fyrr en endanlegar tillögur eru komnar frá ríkisstjórninni af því að það er búið að lýsa því yfir að þetta sé ekki plaggið og hvernig þeim detti í hug að koma með þetta inn í þingið. Ef þetta er ekki plaggið og það á eftir að taka gríðarlegum breytingum þá myndi ég nú mótmæla því að þurfa að fara í slíka vinnu á þessum tímapunkti. En þess ber líka að geta að í umsagnarbeiðni frá hv. fjárlaganefnd, sem var auðvitað send löngu fyrir tímann og algerlega að því er virðist að óyfirveguðu ráði, þá kemur fram að það er ekkert endilega víst að nærveru umsagnaraðila verði óskað við vinnslu frumvarpsins af því að tíminn sé svo naumur.