152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[19:37]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og hér liggur auðvitað hundurinn grafinn, það hvað tíminn er naumur. Það er eitthvað sem okkur hefur orðið tíðrætt um í dag en mér finnst ágætt að ítreka það hér fyrst forsætisráðherra er í salnum þar sem það var auðvitað hennar ákvörðun að kosningar yrðu að hausti en ekki vori eins og venja er. Þar af leiðandi höfum við þennan gríðarlega stutta tíma. Og þrátt fyrir viðvaranir stjórnarandstöðunnar um að það gæfist allt of skammur tími til þess að vinna fjárlög, þrátt fyrir athugasemdir okkar um að þetta væri ekki lýðræðisleg leið til að nálgast kosningar, þá sitjum við uppi með að reyna að flýta fyrir fjárlögunum eins mikið og mögulegt er og alls ekki leyfa þeim að fá sína eðlilegu lýðræðislegu umræðu hér á þinginu eins og þingið fari með fjárveitingavaldið heldur á að drífa þetta allt í gegn. Er þetta ekki sjálfskaparvíti ríkisstjórnarinnar? Þarf hún ekki að gjöra svo vel að sleppa þessu næst?