152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[19:38]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Jú, jú, ég held að við getum alveg verið sammála um það að ríkisstjórnin þurfi að gera betur næst. En það er spurning hvort hún læri af mistökum sínum. Ég er ekki viss um það af því að við höfum séð þessi vinnubrögð áður. Við höfum séð líka fjárlagafrumvarp koma inn í þingið og ekki taka einni einustu breytingu. Ég man eftir því hvað ég var hissa þegar ég varð vitni að því fyrst hér inni. Fjöldi umsagnaraðila kom og benti á ágalla í fjárlagafrumvarpi og það var tekið til umræðu í hv. fjárlaganefnd eins og þar ætti sér stað raunveruleg vinna og svo bara gerðist ekki neitt, engin breyting, nánast ekki breyting upp á túkall. Það er svo sérstakt að í umræðunni, tók maður eftir í gær, virðast þau líta svo á að ef heildartalan er einhvern veginn svipuð, þá sé þetta bara allt í lagi.