fjárlög 2022.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni upprifjunina frá því að velferðarráðuneytinu var skipt upp í félagsmála- og heilbrigðisráðuneyti af engri annarri ástæðu en að tveir ráðherrar gátu ekki unnið saman undir sama þaki. Það kostaði 70 milljónir vegna þess að fólk sem var saman í ríkisstjórn vildi ekki deila ráðuneytisstjóra, riturum, mötuneyti. 70 milljónir. Það er rosalega mikið af 70 milljóna götum í fjárlagafrumvarpinu. Það er rosalega mikið af óskiljanlegum aðhaldskröfum sem hver fyrir sig er bara dropi í hafið miðað við þann kostnað sem mun hljótast af þessu stjórnarráðsráðuneytabixi, t.d. það glapræði að skerða framlög til sjálfstæðra leikhúsa um 30%, niður í 94 milljónir. Ætli sá niðurskurður sé ekki á við giska laun tveggja aðstoðarmanna ráðherra sem er verið að bæta við í nýju ráðuneyti sem þurfti að búa til svo valdahlutföllin í ríkisstjórninni héldust? Ekki af málefnalegum ástæðum heldur pólitískum hagkvæmnisástæðum stjórnarflokkanna. Það að Samtökin '78 séu þurrkuð út úr fjárlagafrumvarpinu eins og gerist á hverju einasta ári þannig að þau þurfi að fara betlandi til fjárlaganefndar og ráðuneytis. Sá dónaskapur, 24 millj. kr. — það eru árslaun ráðherra. Það er ekkert mál að finna þann pening fyrir ráðherrann sem þurfti að redda nýju sæti. (Forseti hringir.) En það er vanvirðingin við starfsfólkið í Stjórnarráðinu sem ég er fastur í líka, (Forseti hringir.) það að þriðjungur starfsfólks ráðuneyta Íslands sé í fullkominni óvissu.