fjárlög 2022.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, 70 milljónirnar leynast víða í fjárlagafrumvarpinu. Það er t.d. 78,7 millj. kr. lækkun á framlagi til Menningarsjóðs. Tónlistarfólk fær aðra slíka lækkun. Þetta er ríkisstjórnin sem ætlar að fara af krafti í að auka við stuðning til menningarmála. Skoðum þetta aðeins betur: 454 millj. kr. lækkun til menningarsjóða heilt á litið. Þarna eru margar 70 milljónir. Ef við veltum aðeins fyrir okkur að það kostaði umræddar 70 milljónir að splitta upp ráðuneytum án annarra tilfærslna, þannig séð, bara vegna þess, eins og hv. þingmaður sagði, að tveir ráðherrar gátu ekki deilt kaffikönnu, þá getur maður rétt ímyndað sér kostnaðinn sem er fram undan við að búa til þetta sem er verið að búa til, þar sem er engin sýn og ekkert mat hefur verið gert á þessari væntanlegu framkvæmd. Það er búið að fjölga lyklum, tvö ráðuneyti. Það er byrjað að raða fólki inn sem á að vinna að uppbyggingu á einu ráðuneyti. Þetta eru ofboðslegir peningar, hv. þingmaður.