fjárlög 2022.
Frú forseti. Hv. þingmaður rifjaði upp að endurskipulagning Stjórnarráðsins á árunum 2009–2013 var ekki bara af því bara, heldur einn af lærdómunum sem þingið og ríkisstjórnin drógu af hruninu og rannsóknarskýrslu um fall bankanna. Það skiptir máli hvaða málaflokkar eru saman og ekki saman. Þess vegna langar mig að rifja upp, vegna þess að nú er nýting orku komin á sama stað og aðhaldið með þeim sem nýta orkuna, með leyfi:
„Að mínu mati er það grundvallarþáttur í velferð þjóðarinnar að rannsóknir á auðlindum og ráðgjöf um nýtingu þeirra séu í skjóli frá nýtingarsjónarmiðum.“
Þetta skrifaði þáverandi hæstv. umhverfisráðherra, (Forseti hringir.) núverandi hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem hafði einmitt lært af hruninu að hagsmunir heildarinnar verða að vera í öndvegi og sérhagsmunaöfl (Forseti hringir.) mega ekki ráða för. Hvað skyldi hafa breyst við þessa endurskipulagningu sem er í gangi (Forseti hringir.) núna varðandi mat á hagsmunum heildarinnar?
(Forseti (LínS): Ég vil minna hv. þingmann á að virða tímamörk.)