152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[19:46]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. — Það er eitthvert ólag á klukkunni, frú forseti, hún hoppar alltaf upp og niður. Í rannsóknarskýrslu Alþingis um hrunið sem unnin var undir forystu Páls Hreinssonar og annarra var ekki verið að horfa á kostnaðinn við ráðuneytin. Það var einmitt verið að horfa á skilvirkni innan ráðuneyta og talað um að það ætti að fækka ráðuneytum af því að mörg hver væru of lítil og vanmáttug til að takast á við verkefni sín. Þannig væri það ekki kostur að hafa þau fleiri heldur einmitt kostur að hafa þau færri. Ég veit ekki betur en að þeim hafi fækkað alveg niður í átta. Það var ákveðinn kostur af því að þau eru mörg hver að vinna sömu verkefnin. Við getum tekið öldrunarmál sem dæmi, þetta er verkefni, og málefni fatlaðra og sjúkra.