152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[19:47]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Þar sem hv. þm. Helga Vala Helgadóttir óskaði eftir því að ég sæti hér undir umræðunni þá vil ég gjarnan fá tækifæri til að veita andsvar, sérstaklega hvað það varðar sem hv. þingmaður beindi til mín um breytingar á Stjórnarráðinu. Nú átti ég því láni að fagna að vera ráðherra í ríkisstjórn 2009–2013 þegar var einmitt ráðist í breytingar á lögum um Stjórnarráðið og farið í breytingar. Á þeim tíma kom ekki til greina að fjölga starfsfólki í ráðuneytunum. Þær aðstæður voru hreinlega ekki uppi þá eins og hv. þingmaður þekkir. Því var tekin sú ákvörðun að fækka ráðuneytum til þess í raun og veru að fá aukinn slagkraft í stjórnsýsluna án þess að fjölga fólki. Þá var mikið rætt og raunar lagt til að lögum um Stjórnarráðið yrði breytt þannig að þau yrðu færð meira í átt til þess sem tíðkast á Norðurlöndum þar sem hver ríkisstjórn ákveður í raun og veru hvernig verkefnum er háttað út frá þeim pólitísku forsendum sem hún er mynduð út frá. En við höfðum auðvitað vanist því fyrirkomulagi sem hér hafði verið frá árinu 1969 þegar nöfn ráðuneyta voru bara fest í lög með þeim stjórnarráðslögum sem giltu lengst af. Þeirri tillögu sem var lögð fram var nú breytt í þinginu vegna mikillar andstöðu þingmanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem gerðu þá kröfu á þeim tíma að Alþingi yrði að samþykkja breytingar á ráðuneytaskipan, ekki eingöngu forsætisráðherra eins og þáverandi hæstv. forsætisráðherra lagði til, til þess að færa stjórnkerfið nær því sem tíðkast annars staðar á Norðurlöndum. Ég var hins vegar mjög hlynnt þessum hugmyndum og endaði málið í ákveðinni millileið þar sem úr varð að forsætisráðherra skyldi leggja þingsályktunartillögu fyrir Alþingi og hún skyldi hljóta afgreiðslu til að unnt væri að breyta ráðuneytum þannig að unnt væri að laga Stjórnarráðið betur að pólitískum markmiðum. (Forseti hringir.)

Það er alveg rétt að hér eru lagðar til miklar breytingar en ég hef þá trú að það sé mjög hollt Stjórnarráðinu að verða hreyfanlegra en það hefur verið og einmitt taka mið af breytingum í samfélaginu.