152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[19:50]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir andsvarið. Ég skil vel að hún geti ekki farið yfir víðan völl í svari sínu þegar tíminn er svona knappur en ég verð þó að segja að mér þykir þetta býsna kæruleysislegt, ég ítreka það. Þegar farið er í svona framkvæmd að breyta risastóru húsi, ef við tökum slíka myndlíkingu af ríkisstjórninni, með mörgum vistarverum þá verður að vera einhver áætlun. Það þarf að vera einhver upphafspunktur. Það þarf að vita að hverju er stefnt, hver á að búa í hvaða herbergi og til hvers eigi að nota þau og hvort það borgi sig að flytja eldhúsið inn á bað eða ekki. Og til þess að gera þetta þá þarf maður að horfa á húsið í heild. Það þýðir ekki að láta eins og maður geti bara tekið húsið, hrist það eins og legókubba og dreift því um gólfið og byggt bara nýtt, af því að það er eitthvað þarna inni sem kallar á heildarsýn, að það sé einhver hugmynd um hvernig þetta á að virka, að pípurnar séu tengdar og síðast en ekki síst að maður hafi efni á þeim stórkostlegu breytingum sem maður ætlar að gera á húsinu eins og blasa við hjá ríkisstjórn Íslands.