fjárlög 2022.
Herra forseti. Ég komst í raun og veru ekki að spurningunni í fyrra andsvari vegna þess að tíminn var stuttur og það sem ég sagði hér í fyrra andsvari var kannski aðdragandi að þeirri spurningu sem mig langar að bera upp við hv. þingmann, sem er: Hver er afstaða hv. þingmanns og flokks hennar til laga um Stjórnarráðið? Finnst hv. þingmanni eðlilegt að við gerum ráð fyrir auknum hreyfanleika í Stjórnarráðinu, að framkvæmdarvald á hverjum tíma geti skipað verkum eftir því sem pólitískar áherslur kalla á eða vill hv. þingmaður frekar horfa til þeirrar hefðar sem hæstv. forsætisráðherra Bjarni Benediktsson kom hér á 1969 með því að festa ráðuneyti í lög og fá samþykki Alþingis fyrir hverri breytingu? Það varð í raun og veru málamiðlun á sínum tíma þó að ekki þyrfti lagabreytingu til heldur þingsályktun. Mig langar bara að kanna hug hv. þingmanns, hvort hún aðhyllist frekar þetta norræna kerfi sem ég hafði örfá orð um áðan eða hvort hv. þingmaður horfir til hinnar íslensku hefðar í þessu.