152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[19:53]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir seinna andsvar. Jú, það er mín skoðun og okkar í Samfylkingunni að það megi vissulega breyta, að Stjórnarráðið megi vera lifandi og eigi alltaf að vinna að því að hámarka afköstin og hámarka árangur sinn. En fyrr má nú vera. Þú getur ekki leyft þér, með slíkt bákn sem Stjórnarráðið er, að hlaupa af stað án undirbúnings. Það getur enginn leyft sér að gera það. Miðað við svörin sem fengust úr Stjórnarráðinu í dag til Morgunblaðsins þá virðist það því miður vera raunin, enda hafa þeir ráðherrar sem hafa verið að svara fyrir þetta, formenn stjórnarflokkanna þriggja, engin svör getað veitt varðandi undirbúning, fyrirhyggju, yfirsýn, utanumhald eða áætlun á þessu stóra verkefni. Það vantar undirbúninginn, frú forseti og hæstv. forsætisráðherra.