fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka kærlega fyrir að fá tækifæri til að bregðast við þessu og fara kannski aðeins nánar yfir þetta. Það er auðvitað þannig, bæði með ríki og sveitarfélög, að það er mikil ásókn í fjármagn. Það eru mörg félagasamtök sem vinna mjög gott starf á hinum ýmsu sviðum og ég geri mér alveg grein fyrir því að það getur verið flókið að gera allt fyrir alla. En það sem ég er að reyna að vísa til hér er að SÁÁ er dæmi um svolítið fallegt. Það verður til þörf í samfélaginu til að berjast við sjúkdóm. Það gengur illa að fá opinbera aðila til að skilja sjúkdóminn og þá taka einstaklingar sig til, stofna samtök og þannig fer boltinn af stað. Þetta er að mörgu leyti sjálfsprottið. Ég er kannski að einfalda söguna svolítið en í grófum dráttum er þetta svona. Síðan byggist þetta upp með þeim hætti sem við þekkjum.
Nú er það orðið þannig að þetta er viðurkennt sem sjúkdómur. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin skilgreinir þetta ekki bara sem sjúkdóm heldur einhvern alvarlegasta sjúkdóm sem er í gangi í nútímasamfélagi og við erum með þessi félagasamtök sem reka jú sjúkrahús. Fólk leggst þarna inn á spítala. Fólk þarf síðan að fara í mánuð í eftirmeðferð. Það er rekin göngudeildarþjónusta. Það er sálfræðiþjónusta fyrir börn. Það er verið að hjálpa fólki sem á við ópíumfíkn að stríða. Við erum með skilgreint fyrirbæri sem við köllum spítala og þá á slíkt fyrirbæri ekki að þurfa að reiða sig á peningagjafir frá almenningi. Ég skil vel að félagasamtök vilja að einhverju leyti reiða sig á sjálfsaflafé, bæði er það kannski gott upp á starfið að virkja fólk og annað og kannski gefur það þeim ákveðið sjálfstæði. En þegar kemur að því að reka svona mikilvæga einingu sem þessi spítali (Forseti hringir.) er þá vantar allt of mikið upp á að ríkið komi með fjárframlög sem gefa okkur tilefni til að vera stolt.