fjárlög 2022.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góð svör og fyrir að tala um mál sem hann þekkir mjög vel, það er gott. Ég hef talað fyrr í dag um nýsköpun og mér þótti gott að heyra að hv. þingmaður talaði einmitt um þau tækifæri sem liggja í nýsköpuninni. En hv. þingmanni varð einnig tíðrætt um fjórðu iðnbyltinguna og ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni um að í henni felast ýmsar ógnir auk tækifæra. Mér hefur þótt skorta skilning og sýn meðal stjórnmálamanna á því hvaða ógnir og tækifæri þetta eru. Ég myndi gjarnan vilja heyra frá hv. þingmanni hvaða leiðir hann telur vænlegastar til að við getum tryggt að fólk sem verður út undan verði ekki illa úti í þessari byltingu.