152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[20:32]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka kærlega fyrir tækifærið til að fá að bregðast við þessu. Ein mínúta er ekki langur tími en það væri einhvers konar byrjun að mínu mati, og kannski er ég að teikna upp pínulítið einfalda mynd, en þið skiljið a.m.k. punktinn, að skólakerfið okkar, alveg frá neðsta stigi og upp eftir öllum skalanum, væri sveigjanlegra og umburðarlyndara gagnvart því að fólk hefur alls konar þarfir og geta þess og hæfileikar liggja mögulega á mjög afmörkuðum sviðum sem á að vera hægt að rækta innan skólakerfisins frekar en að við séum öll sett í einhvers konar skapalón þar sem kannski er gerð krafa um miklu víðtækari og almennari þekkingu en þarf. Ég er ekki að gera lítið úr slíku. Ég er bara að tala um að með því að hugsa hluti svolítið upp á nýtt í menntakerfinu væri hægt að setja upp ýmsar girðingar og koma í veg fyrir að ýmsir sem eiga litla möguleika í fjórðu iðnbyltingunni, sem okkur verður tíðrætt um, ættu þá a.m.k. meiri möguleika á því að rækta hæfileika sína á tilteknum afmörkuðum sviðum þótt þeir finni sig mögulega ekki inni í skólakerfinu eins og það er hannað í dag.