152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[20:36]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir að fá tækifæri til að bregðast aðeins við þessu. Ég ætla ekki að þykjast vera hokinn af þingreynslu eða hafa tekið þátt í mikilli fjárlagavinnu hingað til. En ég hef þó fylgst aðeins með þessu í gegnum tíðina í gegnum störf mín og af áhuga fyrir því sem gerist hér á hinu háa Alþingi og ég verð að segja það, miðað við aðdragandann að þeirri stöðu sem við erum í núna, hversu seint við erum að fara í fjárlögin og það hvernig menn hafa talað um það hversu miklu þurfi að breyta í sjálfri fjárlagavinnunni hjá þinginu, þá er margt í þessu öllu sem gefur manni tilefni til að efast um að það sé mikið mark takandi á mörgu sem þarna er. Ég velti svolítið vöngum yfir því, af því að þeir flokkar sem núna mynda ríkisstjórnina voru mjög lengi að koma sér saman um það — eða að ná saman, þeir voru svo sem ekki lengi að gefa það út að þeir vildu reyna að halda meiri hlutanum áfram inn í nýtt kjörtímabil. Þessi rosalega uppstokkun á Stjórnarráðinu, þessi tilviljunarkennda færsla á verkefnum á milli ráðuneyta, ég ætla ekki að nota orðið upplausn en við sjáum að þetta veldur ákveðnu kaosi í Stjórnarráðinu meðal almennra starfsmanna og annað. Ég held að þetta sé svolítið truflandi faktor, ef ég má sletta, í allri þeirri vinnu sem við erum í núna. Það verður svolítið áhugavert að sjá hvernig vinnunni vindur fram í þinginu með fjárlög því að það er auðvitað búið að tala þannig og boða að það verði heilmiklar breytingar gerðar af hálfu stjórnarliða á því sem þó liggur fyrir í frumvarpinu eins og við sjáum það á þessari stundu.