fjárlög 2022.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna, margt áhugavert. Mér fannst sérstaklega áhugavert þegar hann var að fjalla um Háskólann í Reykjavík og nýsköpun. Það var minnst á það fyrr í dag, jómfrúrræða hv. þm. Gísla Rafns Ólafssonar fjallaði mikið um nýsköpun. Mig langar að spyrja hv. þingmann um eitt: Finnur hann einhverja sýn í málefnum nýsköpunar og þátttöku í fjórðu iðnbyltingunni í fjárlagafrumvarpinu? Ég hef hvorki fundið hana né séð. Í fjárlagafrumvarpinu eru auknar fjárheimildir upp á 1,5 milljarða til nýsköpunar. Þær eru undir 30 milljörðum, það eru fjármunir sem fara í hina ýmsu sjóði og annað slíkt. Það eru jú peningar en það þarf miklu meiri breytingar í þetta. Iðnbyltingin kom til Íslands 1904 með fyrsta vélbátnum til Ísafjarðar. Fyrsti vélbátur fjórðu iðnbyltingarinnar eða upplýsingabyltingarinnar er ekki enn þá kominn til landsins. Það sem mér finnst vanta algerlega, ég tek bara sem dæmi, er vitundarvakning í skólakerfinu. Í Háskólanum í Reykjavík eru fimm nemendur sem stunda nám í „data science“, upplýsingavísindum sem er grundvallarfag upplýsingatæknibyltingarinnar. Það er sóst eftir fólki úr þessu í fagi í öllum fyrirtækjum í heimi. Við erum að búa til fimm á ári, það eru fimm nemendur. Það er mikil hætta á að Ísland dragist aftur úr öðrum þjóðum og við erum þegar farin að gera það. Ég get tekið dæmi um smáríkið Eistland, 1,3 milljónir, þeir hafa algerlega stafræna stjórnsýslu og eru fremstir í flokki og þeir eru byrjaðir að kenna í grunnskólunum rökfræði, forritun og hvað gervigreind er. (Forseti hringir.) Við erum ekki komin nálægt því hvað þetta varðar.
En ég ítreka spurninguna: Er einhver sýn í fjárlagafrumvarpinu á upplýsingabyltinguna?