fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður vísaði í stjórnarsáttmálann sem er merkilegt plagg og ég fjallaði um hann í gær í jómfrúrræðu minni, sem ég vil kalla svo, eftir reyndar fjögur andsvör á undan. Í stjórnarsáttmálanum er kafli sem heitir: Við ætlum að nýta tæknibreytingar til að skapa aukin lífsgæði. Þar segir eftirfarandi, með leyfi forseta: „Ísland er nýsköpunarland með öfluga tæknilega innviði …“ En er Ísland sérstakt nýsköpunarland? Nei, við erum það ekki. Við búum í auðlindahagkerfi, við búum ekki í þekkingarhagkerfi. Ef við ætlum að fara úr auðlindahagkerfi yfir í nýsköpunarland þá kostar það gríðarlega fjármuni og kerfisbreytingar á öllum sviðum. Þetta snýst ekki eingöngu um peninga. Það er alveg hárrétt að stjórnarsáttmálinn er almennt orðaður og fallegt plagg en fjárlagafrumvarpið endurspeglar ekki sáttmálann, því miður. Það er grundvallaratriði. Það þarf að fjárfesta í framtíðinni, fjárfesta í fjórðu iðnbyltingunni. (Forseti hringir.) Sú iðnbylting mun umbylta öllum sviðum samfélagsins og það er þegar byrjað að gerast, við þekkjum það sjálf þegar við notum farsímann okkar.