152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[20:47]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil biðjast afsökunar á því ef ég hef ekki notað rétt ávörp og leyfi mér að vísa í reynsluleysi mitt og ég skal reyna að vanda mig í því öllu. Maður hefur auðvitað fylgst með umræðunni í þinginu lengi, virðulegur forseti, og oft undrast það hvernig menn haga ávörpum og hvernig menn tala með svona formlegum hætti. En eins og þú fórst … [Hlátur í þingsal.] — Eins og virðulegur forseti fór yfir hér áðan af miklum myndarbrag þá er auðvitað full ástæða til þess að gera þetta með þeim hætti sem viðhafður er hérna í þinginu.

En svo ég komi að því sem hv. þingmaður var að nefna hérna áðan þá erum við vissulega með auðlindahagkerfi en í kringum auðlindirnar okkar höfum við byggt upp óskaplega mikla þekkingu, í sjávarútvegi, orkunni og mörgu fleiru, og við þurfum að yfirfæra þetta yfir á fleiri svið. Erum við nýsköpunarþjóð? Já, við erum það. En við gætum verið markvissari í því að efla fleiri stoðir þar og láta þær ekki bara snúast um auðlindirnar okkar og það sem við höfum út úr þeim. En þekkingariðnaðurinn sem við höfum byggt upp þar, hann er algerlega ómetanlegur fyrir íslenskt samfélag.

(Forseti (BLG): Forseti kemst næst því að finna svar á Vísindavefnum sem segir að þetta heiti fótfesturök á íslensku, menn missi fótfestuna og hrapi stjórnlaust ef maður ani út á þessar götur í rökfræðinni.)